föstudagur, nóvember 25, 2005

Engar áhyggjur...

er á lífi. Hins vegar á ég ekkert líf þessa daganna. Ég er búin að liggja í rúminu næstum alla vikuna eins og hálft Ísland, þannig að ég hef ekki stigið fæti út fyrir húsins dyr. Týpískt samt þegar maður er loksins orðin hraustur og getur gert eitthvað þá er bara enginn laus :o( Við getum hins vegar fagnað því að einungis vika er eftir af skólanum, verra er samt að þá taka prófin við... Við verðum bara að horfa á björtu hliðarnar því þegar prófin eru búin þá er jólafrí :o)

Ég verð samt að segja að ég hlakka til þegar ég er orðin stór og á pening til að kaupa mitt eigið heimili... Helst í einbýli!!! Og losna við þessa illa geðbiluðu nágranna sem ég á. Sumt fólk á einfaldlega ekkert líf og þessi tiltekni maður virðist fá eitthvað kikk út úr því að hrella mig. Hann er ljúga upp á mig einhverju rugli og svo króaði hann mig af niðri í þvottahúsi og öskraði á mig. Ég meina er ekki hægt að tala við fólk fyrst? Annars nenni ég ekki að pirra mig meira á þessu, maðurinn á greinilega við einhver geðræn vandamál að stríða og þarf aðstoð... Framvegis mun ég bara algjörlega hunsa manninn... Ég veit að maður þarf að sætta sig við ýmislegt þegar maður býr í svona sambýli, en kræst, mér finnst þetta nú of langt gengið... Jæja þetta eru nú stærstu tíðindin af þessum bæ í bili :o)

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Vinnandi kona :o)

þá er ég orðin vinnandi kona, loksinsloksins. Ég fór á mitt fyrsta vinnudjamm á föstudaginn, svaka stuð. Það var þrifadagur í vinnunni og ég mætti til að vera á skiptiborðinu. Um kvöldið var svo haldið upp í Laxnes á hlöðuball, það var æðislega gaman og mamma var orðin dáldið hress, já by the way, er að vinna á sama stað og mamma. Það var matur í boði og frítt áfengi. Ég fór þó snemma heim, fékk far með pabba heim. Dáldið blönk þar sem ég er bara nýbyrjuð að vinna og ekki búin að fá útborgað. Ákvað því að fljóta með gömlu heim.

Ég svaf svo til hádegis í dag, hefði örugglega sofið lengur nema pabbi gamli hringdi og vakti mig. Hann var að panta förðun fyrir eina sem vinnur með honum fyrir kvöldið, en það er árshátíð hjá honum í kvöld. Þannig að hann reddaði dótturinni kúnna, ekki slæmt hjá gamla. Mamma kom svo líka í förðun þegar hún var búin í greiðslu. Eftir alla þessa vinnu sótti ég Höllu í vinnuna og við skelltum okkur í ræktina. Erum við ekki duglegar? Orðnar algjörar heilsufríkur eða hitt þó heldur því eftir ræktina skelltum við okkur á KFC, en okkur til afsökunar þá er nammidagur í dag. Við ákváðum að skella okkur svo í bíó þar sem úrvalið í imbanum var frekar slæmt. Við fórum á Kiss Kiss Bang Bang. Ég mæli með henni, hún var sjúklega fyndin. Ekki týpísk Hollywood mynd. Val Kilmer og Robert Downey Jr fóru á kostum. Jæja ekki er mikið meir í fréttum. Maður er enn á fullu í skólanum og það fer að líða að prófum, jey. Heyri í ykkur seinna...