fimmtudagur, september 18, 2008

I am the biggest looser!!!

Jáhá ég vann biggest looser viku okkar mæðgna :o) Mjög stolt af sjálfri mér, missti 2,5 kg. Ég get samt ekki sagt að ég mæli með þessu. Það var mikil svengd upplifuð í þessari viku og allir orðnir frekar orkulausir í restina. Nú er bara að halda áfram á þessari leið og taka af fleiri fleiri fleiri kg. Um að gera að vera orðin flott og fitt fyrir USA-ferðina í vor :o) Jæja annars er nú ekki mikið meira í fréttum en þetta, lífið gengur bara sinn vanagang.

þriðjudagur, september 09, 2008

Skólinn byrjaður

og ég er að komast í gírinn :) Annars er nú allt við það sama á þessu heimili, ritgerðin er reyndar klár og ætla ég að skila henni á morgun. Það verður nú gott að koma henni frá sér, og geta bara einbeitt sér að skólanum. Svo verður líka tekið á því í ræktinni, en við mæðgurnar ætlum að byrja á biggest looser viku á morgun,bara svona að gamni. Svona til að sjá hvort þetta bigges looser dót virki. Erum komnar með mataráætlun og svona.... Leyfi ykkur að fylgjast með hvernig þetta gengur allt saman.