föstudagur, apríl 04, 2008

Algjör íþróttaálfur

Konan er bara orðin líkamsræktarfrík!!!!!!!!!!!! Ég hitti einkaþjálfarann í dag og fót í vigtun og svona. Hann ætlar að útbúa prógramm fyrir mig svo ég geti náð öllum þessum leiðilegu aukakílóum. Ég var sem sagt í ræktinni í dag og svo fór ég í göngutúr með Lady ásamt litlu frænkum mínum, Steinunni Evu og Sunnu Maríu. Það endaði nú bara með því að ég þurfti að halda á litlu skvísunni stóran hluta af leiðinni, var e-ð þreytt greyið. Hún er svo að koma til mín í gistingu til mín á morgun. Við pabbi ætluðum svo á hestbak en það var bara búið að gefa þeim að borða þannig að við þurftum bara að snúa heim. Annars er nú ekki meira að frétta héðan, bara same old same old. Skóli skóli skóli!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

1 Comments:

At 8:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Aldeilis dugleg stelpa :) Allt á fullu hjá þér. Annað en ég sem sit heima alland daginn og borða svo skyndibita á kvöldin og drekk bjór.....

 

Skrifa ummæli

<< Home