sunnudagur, maí 06, 2007

Smá update

Jæja eftir að vera búin að vera innilokuð síðan skóla lauk er nú ekki mikið í fréttum hér. Góðu fréttirnar eru þó að ég er búin með 3 próf af 4 og búin að fá einkunn úr einu og ég náði, jey. Næsta próf er þó ekki fyrr en á föstudaginn og er ég því bara búin að vera í chilli síðan ég lauk seinasta prófi, sem ég by the rúllaði upp :o) Eftir að hafa lokað augunum yfir öllu rykinu og drullunni hérna heima fór ég loksins í það að þrífa placið og er nú allt hreint og fínt. Ég fékk einhvern rosakraft og henti út gamla sófanum og setti nýja sófann saman, hörkudugleg skvísa... Á laugardeginum fór ég svo í 1 árs afmæli litlu krúsídúllunnar hennar Erlu vinkonu, svona barnaafmæli geta gert mann alveg úrvinda og eyddi ég kvöldinu í algjörri leti upp í sófa að glápa á imbann... Núna er ég bara að bíða eftir seinasta prófinu, sem við Halldóra ætlum að læra saman fyrir. Vonandi að það muni bara ganga vel, annars er ég ekki að nenna þessu prófaveseni og er bara farin að bíða eftir því að komast til Danmerkur.

5 Comments:

At 9:37 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

It's alive!!!! :)

15 dagar í DK!!! OMG :)

 
At 9:34 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gangi þér vel í síðasta prófinu skvísa :)Þú verður svo að koma með mér í Smáralinda eftir prófin og eyða yndislegu afmælisgjöfinni sem þið gáfuð mér!

 
At 4:34 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Alveg til í það... þarf að fara í smá fataverslun ;o)

 
At 12:37 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

12 dagar í DK...

 
At 8:52 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með próflokin, ég er aaaaaaaalveg að verða búin!!! :)

 

Skrifa ummæli

<< Home