föstudagur, desember 22, 2006

Jólafríið byrjað,

prófin búin og maður er komin í létta vinnu... Seinasta prófið var á miðvikudaginn eftar 3ja daga próftörn, kræst hvað maður er þreyttur. Fyrsta einkuninn komin og hún er úr fýlunni (fyrir ykkur sem ekki kannast við það þá er fýlan = heimspekileg forspjallsvísindi). Ég fékk bara 5, en who cares? þetta er búið og 5 þýðir að ég get hent fýlu glósunum og hreinsað þessa gagnslausu vitleysu úr hausnum á mér. Ég fór í gær í klippingu, kláraði að kaupa jólagjafirnar og kvaddi hana Guðnýju mína, áður en hún hélt í sveitina. Í kvöld er ég svo með 2 skvísur í neglur og 1 í plokkun og litun, betra að sprússa upp á liðið fyrir jólin. Nú á ég bara eftir að rúlla aðeins yfir placið og setja upp smá jólaskraut og þá er ég tilbúin fyrir jólin. Gleðileg jól allir (e.s. þið fáið engin jólakort, hafði engan tíma fyrir svoleiðis dútl...)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home