mánudagur, júní 11, 2007

Loksinsloksins!!!!

Allar einkunnir komnar og skvísan náði barasta öllum prófunum, auðvitað með misjöfnum árangri en þetta hafðist. Hér er hitinn að rjúka upp úr öllu valdi og ég að bráðna :o) Nú líður óðum að því að maður komi heim á klakann, auðvitað brúnn og sætur eins og manni einum er lagið. En með því líður einnig hratt að lokaprófi hérna í kúrsinum en það er á fimmtudaginn :o( en svona er lífið. Við rúllum því upp. Seinasta helgin verður svo í Kaupmannahöfn eins og áður hefur komið fram, en í staðinn fyrir að vera á hótel hefur okkur verið boðið að gista heima hjá gömlu vini hennar Sillu. Það er ágætt, spörum okkur pening þar og getum verslað að eins meir ;o) Ég reyni kannski að henda inn fleiri myndum í vikunni ef það er tækifæri til.

4 Comments:

At 1:35 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að sjá myndirnar! Hlakka til að sjá þig þegar þú kemur á klakann :)

 
At 3:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

HEIMKOMA=VINNA INTRUM- KVÖLDHR OG ÞÁ ER FERÐASAGA Á MEÐAN VIÐ GÆTUM OKKUR Á GÓÐGÆTINU ÚR FRÍHÖFNINNI =)

 
At 8:40 f.h., Blogger Agnes said...

Er nú ekki viss um að ég hafi orku í kvöldhringingarnar á mánudeginum en það verður alla vegna á miðvikudeginum ;o) en hlakka til að sjá ykkur og kem með eð gott handa ykkur til að narta í...

 
At 4:56 e.h., Blogger Unknown said...

naunaunau...þú bara öflug í blogginu;o) til hamingju með allar einkunnirnar...og gangi þér vel í prófinu á fimmtudaginn elsku systir mín...skemmtið ykkur svo vel í Köben, versliði nóg og drekkið fullt af bjór:o) treysti á að þú sötrir einn tuborg classic fyrir mig...

 

Skrifa ummæli

<< Home