þriðjudagur, júní 21, 2005

Þá er konan flutt...

það er reyndar vika síðan, er búin að vera frekar löt í blogginu + það að maður er ekki enn komin með internet. Ég er bara alveg að verða búin að koma mér fyrir enda um leið og maður flytur í draslið drullast maður til að gera eitthvað. Ég er meira að segja búin að halda fyrsta kaffiboðið, ægilega dugleg húsmóðir ;o) Linda og fjölskylda komu í kaffi ásamt Gústa og ég var á milljón og baka fyrir liðið.... Nei kannski ekki alveg satt en gerði nú samt köku fyrir þau. Annars er nú ekki mikið í fréttum hjá mér og því verður þetta bara stutt blogg í þetta skiptið...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home